Þristur frá Feti IS1998186906
Skip Navigation Links > Fréttir
Venjulegt letur    Stórt letur

Þristur

Afkvæmi

Fyrirspurnir


Leita á vefsíðu



Teljari: 154959

Fréttir


Nýjar afkvæmamyndir / New photos

4.1.2012
Stækka mynd

Nokkrar myndir hafa bæst í möppuna af afkvæmum Þrists. Endilega kíkið á og enn og aftur hvetjum við eigendur Þristsafkvæma til að senda inn myndir. 


Some new photos have been added to the album showing Þristur offspring. Take a look and remember, if you a Þristur offspring, we would love to post

Ný stjórn Þristsfélagsins

4.1.2012
Stækka mynd

Aðalfundur Þristsfélagsins fór fram í desember sl. Kjörin var ný stjórn, en hana skipa Brynjar Vilmundarson, formaður, Hulda G. Geirsdóttir og Magnús Kristinsson, til vara Stefán Aadnegard og Valdimar K. Jónsson. Á fundinum var ákveðið að stefna að því, að óbreyttu, að sýna Þrist til heiðursverðlauna á LM 2012 og að

Þristur kominn í frí - sónað á sunnudaginn!

21.9.2011
Stækka mynd

Þristur var tekinn úr merunum fyrir tæpum hálfum mánuði og er nú komin í haustfrí heima í Akurey. Á sunnudaginn kemur, 25. september, verða hryssurnar sem voru hjá honum á Borgum í Borgarfirði sónarskoðaðar. Áætlað er að byrja að sóna kl. 17 og þarf að sækja allar hryssur að skoðun lokinni. Nánar á

Sónað á morgun föstudag!

11.8.2011
Stækka mynd

Þær hryssur sem enn eru í Akurey frá fyrra gangmáli verða sónarskoðaðar á morgun föstudaginn 12. ágúst eftir hádegi. Hringt verður í hryssueigendur að skoðun lokinni, en sækja þarf allar hryssur í framhaldinu.
Þristur er nú á Borgum í Borgarfirði þar sem hann sinnir hryssum í góðu atlæti.

Örfá pláss laus á seinna gangmál

19.7.2011
Stækka mynd

Örfá pláss eru laus undir Þrist á seinna gangmáli sem hefst í næstu viku. Tekið verður við hryssum í Hjarðarholti í Borgarfirði mánudaginn 25. júlí á milli kl. 18 og 20. Seinna gangmálið er á vegum Hrossaræktarsambands Vesturlands og er eingöngu tekið við pöntunum í gegnum vefinn

Þristur kominn með 1. verðlaun fyrir afkvæmi

6.7.2011
Stækka mynd

Þristur var sýndur til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi á LM sl. fimmtudag. Sex dætur hans komu fram og tókst sýningin vel. Dómsorð Þrists eru eftirfarandi:

Þristur gefur hross í rífu meðallagi að stærð með skarpt, þurrt og svipgott höfuð. Eyrun eru vel borin en löng og kjálkar djúpir. Hálsinn er reistur og mjúkur

Þristur sýndur til 1. verðlauna fyrir afkvæmi á LM

30.6.2011
Stækka mynd

Þristur verður sýndur til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi í dag, fimmtudaginn 30. júní 2011, á landsmóti hestamanna á Vindheimamelum. Sex dætur Þrists munu koma fram í sýningunni, en Þristur sjálfur er upptekin í ástarlífinu á Suðurlandi og kemur því ekki. Þær hryssur sem koma fram eru:
Dimmalimm frá Þúfu
Randalín

Þristsafkvæmi gera það gott!

17.5.2011
Stækka mynd

Nokkur Þristsafkvæmi hafa komið til dóms í vor og er óhætt að segja að útkoman sé glæsileg. Þristur hefur verið að gefa feiknarlega góð klárhross og afkvæmi hans eru þegar farin að gera sig verulega gildandi í keppni. Hér má sjá dóma á þeim fjórum Þristsbörnum sem dæmd voru á vorsýningum í Danmörku og Þýskalandi:

Þristsafkvæmi á Orra sýningu

26.3.2011
Stækka mynd

Afkvæmahópur undan Þristi mun koma fram á stórsýningunni Orri í 25 ár sem fram fer í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í dag. Sýningin hefst kl. 17 og þar mun Orri sjálfur koma og verða hylltur auk þess sem afkomendur hans munu skemmta gestum.

A group of Þristur offspring will perform at the Orri tribute show in the

Þristur í góðu yfirlæti í "gamla" nýja húsinu sínu

14.3.2011
Stækka mynd

Þristur kom á hús í Kópavogi í janúar sl. og dvelur þar í góðu yfirlæti. Þrátt fyrir að fara í sömu stíuna og áður gekk hann inn í "nýtt" hús á nýjum stað, en hesthúsið sem Þristur er í hafði verið flutt á milli hverfa, frá Glaðheimum upp á Kjóavelli í Kópavogi. Húsið var einnig stækkað og er aðstaða til þjálfunar og

Engar fréttir eru góðar fréttir

2.11.2010
Stækka mynd

Lítið hefur farið fyrir fréttaskrifum  hér á síðunni í haust en segja má sem svo að engar fréttir séu góðar fréttir. Þristur lauk störfum norður í Aðaldal snemma í september og kom svo suður og fór "heim" í Akurey í haustfrí. Þar dvelur hann nú í góðu yfirlæti og verður þar til hann kemur á hús síðar í vetur.

12345